Posts tagged: útskrift

Sniglaveisla

Ég hef, undanfarna mánuði, átt í stríði við laumusniglana í fiskabúrinu mínu. Einhverntíman kom nefnilega einhver óvelkominn snigill heim með nýrri plöntu (sennilega) eða nýjum fisk (ósennilega) og sá hefur heldur betur komið sér vel fyrir og fjölgað sér.

Í fyrstu þá reyndi ég bara að tína upp þá sem ég sá, svo fór ég og splæsti í 2 sniglaætum. Sniglavandamálið snarminnkaði þegar æturnar komu en hefur náð, engu að síður, að stigmagnast og eru býsna margir sniglar núna. Svo að ég ákvað að græja sniglagildru. Þá tók ég glerflösku (undan ógeðishóstasaftinni sem enginn vildi nota), inní hana setti ég svo gúrkusneið. Þetta virkar mjög vel á sniglana, þeir koma hlaupandi (haha svona einsog sniglar hlaupa) og setjast á gúrkuna. Vandamálið er að sniglaæturnar eru líka hrifnar af gúrku og koma því líka og leggjast á beit. Þar af leiðandi fá þeir sniglar sem nenna ekki í gúrkuát að vera í friði :-(

Semsagt ég held að ég verði annað hvort að kaupa sniglaeitur (sem gæti eitrað fyrir einhverju fleira í búrinu, td skrautsniglunum mínum) eða fleiri sniglaætur. Hmmm, mér er svosem sama þó að það séu nokkrir laumusniglar en þetta er aðeins of mikið núna.

EN annað þá er útskriftin mín föstudaginn 26. júní.