FEBRUARY 26TH, 2010
By EDDA RóS
- Kjúklingabaunir (annað hvort úr dós eða þá þurrar sem þurfa þá að hafa legið í bleyti í amk hálfan sólarhring)
- salt
- krydd
- Ólívuolía
Kjúklingabaunirnar (miðað við eina dós) eru settar í poka með ca. 1tsk krydd (karrý, paprika, laukduft, hvítlauksduft, eða whatever) 1tsk salt (ég notaði maldon saltflögur sem ég muldi aðeins fyrst) og 1/2msk ólívuolíu (því að hún er hollari fita en venjuleg) og svo er allt hrisst vel saman. Þessu er svo jafnað á plötu og bakað í ca 20 mín (passið ykkur að fylgjast með því að þær brenni ekki við, þær eiga að verða svona vel tanaðar) við 220°c á blæstri.
Þetta er síðan bara borðað sem snakk, er kannski ekki eins gott og doritos eða þykkvabæjareitthvað EN er samt nokkuð gott
APRIL 29TH, 2009
By EDDA RóS
Ég var eitthvað að gúggla, leita að leiðum til að plata soninn til að borða meira (eitthvað) grænmeti og ég fann þessa uppskrift, ég ákvað að prufa hana og niðurstaðan var nokkuð góð – mætti vera sætari en samt nokkuð góð.
- 85 gr súkkulaði
- 1/2 bolli gulrótamauk (gufusoðnar gulrætur mixaðar vel með smá vatni)
- 1/2 bolli spínatmauk (ég gufusauð frosna spínatköggla og mixaði þá svo vel)
- 1/2 bolli púðursykur
- 1/4 bolli ósætt kakó
- 2 matskeiðar mjúkt smjörlíki
- 2 teskeiðar vanilluextract
- 2 stórar eggjahvítur
- 3/4 bolli hveiti
- 1/2 tsk lyftiduft
- 1/2 tsk salt
Hitið ofninn í 175°c. Smyrjið 20×20cm form. Bræðið súkkulaðið . Blandið saman í skál grænmetinu, sykrinum, kakóinu, smjörlíkinu, vanillunni og brædda súkkulaðinu og hrærið vel saman (1-2 mínútur). Blandið eggjahvítunum vel saman við. Blandið svo hveitinu, lyftiduftinu og saltinu rólega saman við með sleif.
Setja deigið í formið og baka í 35-40 mínútur, kælið vel áður en kakan er skorin niður í hæfilega stóra bita.