Ný síða
Ég hef ekki bloggað mikið undanfarið, hef satt best að segja ekki verið í stuði til að segja frá einu né neinu. Þrátt fyrir að Magni Steinn hafi verið hérna hjá mér í eina skemmtilega viku þá hefur framtíðin átt hug minn allan. Ég komst ekki inn í skólann, ég virðist ekki hafa komist inn eftir að biðlistanemendurnir voru teknir inn en þrátt fyrir að ég hafi sent tölvupóst og óskað eftir að fá endanlegt svar þá hef ég ekki fengið það. Skólinn byrjar á miðvikudaginn í næstu viku svo að ég efast stórlega um að einhver undur og stórmerki gerist þangað til. Það sem mér finnst verra en að hafa ekki komist inn er að vita hverjir komust inn, því að þar á meðal er fólk sem mér fannst undarlegt að skildi útskrifast yfirleitt. Fólk sem var ekki bara með verri einkunnir en ég heldur líka með töluvert lægri einkunnir en ég – en hinsvegar er það fólk sem þarf að borga skólagjöld. Djöfulli er ég komin með leið á þessari útlendingastefnu dana. Danir eru ógeðslega fordómafullir, leiðir og pirraðir yfir öllum innflytjendunum en engu að síður þá vilja þeir helst af öllu fá þetta fólk í skólana sína. Þetta er útaf skólagjöldunum, þeir græða svo mikið á því að fá þetta fólk hingað. Svo getur þetta fólk heldur ekki fallið, sem er ennþá meira pirrandi fyrir okkur hvítingjana. Auðvitað eru sumir af þeim í skóla til að læra en það er líka augljóst að flestir af þeim eru í skóla til að fá visa.
En já anyway þar sem að ég komst ekki inn í skólann þá veit ég ekki hvað í fjandanum ég á að gera og ég hata að vera svona stefnulaus. Það er of seint að reyna að skrá sig í einhver önnur nám svo að það eina sem er í stöðunni er að reyna að fá vinnu einhverstaðar. Þó að maður geti ekki beint verið picky þá vil ég nú fyrst reyna á það að fá vinnu sem hefur eitthvað með mína menntun að gera, svona áður en maður fer í skeiningarog skúringar. Ég er því bæði búin að sækja um slatta af störfum (það er ekki beint mikið í boði, en samt eitthvað), einnig búin að senda umsókn á staði sem eru ekki að leita að fólki, og svo ákvað ég að uppfæra heimasíðuna mína með það í huga að hún sé nokkurnskonar portfolio fyrir mig.
Svo að ég hef uppfært heimasíðuna mína, er ennþá að slípa hana til, breyta og laga texta við myndir og ég á eftir að bæta við linkum á heimasíður sem ég hef gert en endilega kíkið, skoðið og kommentið.