Klukkan er orðið mikið og ég ætti að fara að sofa og ef ég ætlaði ekki að fara að sofa þá ætti ég að vaska upp og ganga aðeins frá í eldhúsinu og ef ég ætlaði ekki að gera það þá ætti ég að skjótast í sturtu og ef ekki það þá amk fara á klósettið… En samt sit ég hérna ennþá, ég er búin að vera að horfa á Gray’s Anatomy og velta fyrir mér smá flash vandamálið (fyrir heimasíðuna mína – ekki skólann) í allt kvöld. Ég er líka búin að vera að rembast við að finna uppá einhverju sem mig langaði til að borða, eitthvað til að halda uppá tólfuna mína – en það hefur gengið illa. Mig langaði líka ekkert í rauðvín eða eitthvað annað, ekki í nammi eða ís (fékk mér þó smá af hvoru, svona útaf því að ég var að halda uppá góða einkunn).
Ég held að ég hafi aldrei upplifað jafn mikla gleði og jafn mikinn létti yfir einni einkunn – og ég hef alveg fengið nokkrar tíur á ferlinum. Einsog flestir vita þá var seinasta próf, sem ég fór í í KTS, alger hörmung, mér leið illa inni í prófinu, var óánægð með hvernig það fór fram og óánægð með einkunnina sem ég fékk. Ég var ekkert svo stressuð yfir því prófi og það endaði hræðilega. Í morgun, áður en við fórum í prófið, þá æfðum við okkur og ég gat ekki talað – ég bara gat ekki komið frá mér gáfulegu orði. Það hjálpaði ekki til, einsog ég hef áður sagt, að hæsta einkunn sem ég vissi um í bekknum mínum þá var 7 og það voru alveg mjög hæfir einstaklingar búnir að fara inn. Einstaklingar sem höfðu áður fengið tíur og tólfur.
Svo fórum við inn, prófið var skipt þannig að fyrst var hópurinn með kynningu saman, svo komum við inn fyrir prófdómarana – eitt í einu – og vorum spurð í þaula um hin ýmsu atriði sem tengdust verkefninu og kynningunni. Ég var nr 4 í röðinni og þegar kom að mér þá vissi ég ekkert hvað ég ætlaði að segja, ég vissi svosem hvaða atriði ég ætti að minnast á, en hvernig ég ætlaði að segja frá því var ennþá ráðgáta. Svo að ég bara byrjaði að tala og á einhvern undarlegan hátt þá bara talaði ég og talaði þangað til að ég áttaði mig á því að það var einn sem átti líka eftir að fá að tala og ég vissi ekkert hvernig tímanum leið. En ég sagði mikið af gáfulegum hlutum, mikið af hlutum sem við höfðum ekki einu sinni pælt í fyrr en ég ældi þeim þarna út úr mér (sem er kannski ekki gáfulegasta leiðin að þróa verkefni) og ég var gáttuð á sjálfri mér. Eftir á, þegar við vorum að tala saman hópurinn, þá sagði Michelle að það hefði verið sérstakt að fylgjast með mér tala, því að ég hefði bara talað og talað og sagt einn gáfulegan hlut á eftir öðrum og það hefði bara allt meikað sens. Ég er ekki að grínast ég held að ég hafi verið andsetin, ekki að ég viti ekkert um málið heldur þá á ég ekki alltaf mjög auðvelt með að halda þessar kynningar og það var svo margt sem ég sagði sem ég hafði ekki pælt í áður.
En já svo í einstaklingshlutanum þá gékk mér ágætlega. Kirsten var sú eina í hópnum sem að var óánægð með hvernig hennar próf gékk, hún var líka alveg rosalega stressuð – svo stressuð að ég vissi ekkert hvernig ég átti að haga mér í kringum hana. Við hin gerðum ráð fyrir sjöum og vonuðum að ná upp í tíur, hún gerði ráð fyrir 2 – en það var samt eiginlega útilokað, amk að mínu mati.
En já við fengum tólfur og tíu og við vorum mjög mjög ánægð – enda ekki annað hægt. Þegar við fengum svo útskýringu á einkunnunum þá sagði kennarinn okkar (semsagt innherja prófdómarinn) að það hefði verið “inspiration” að lesa skýrsluna okkar og fylgjast með kynningunni. Hann sagði að það hefði verið eitt smávægilegt atriði sem hann hefði saknað í skýrsluna – en það atriði hefði ekki verið skilyrði í verkefninu en hann hefði engu að síður viljað sjá að við vissum um hvað það snérist – en þar sem að við komum með það atriði í kynningunni sjálfri þá hefðum við komið í veg fyrir að fá mínus fyrir það.
Svo á eftir okkur þá fékk gamli hópurinn minn líka tólfur (hópurinn sem ég var með á seinustu önn) og það var gott að vita það líka – þau eru öll dugleg að vinna og mjög klár.
En já núna þegar ég er búin að monnta mig í nánari smáatriðum þá get ég kannski hætt í tölvunni – farið að pissa – farið svo uppí rúm (það má ganga frá, sturtast osfr á morgun, næsta próf er ekki fyrr en eftir viku)