DECEMBER 9TH, 2009
By EDDA RóS
Það er komin vika og satt best að segja þá finnst mér ótrúlegt hversu vel mér líður – miðað við hvað ég var í miklu rusli á fimmtudag og föstudag. Kannski er ég bara í einhverri afneitun eða kannski er ég bara loksins að átta mig á því að þetta reddast, þetta verður bara allt í lagi. Ég vil reyndar líka þakka þessu það að ég hef reynt að vera jákvæð, amk meiri hluta dagsins, ég hef líka talað óendalega mikið við alla mína góðu vini – og er eiginlega komin með ógeð á vælinu í sjálfri mér hehe.
Núna, í fyrsta skiptið í töluvert langan tíma, finnst mér ég vera sjálf við stjórn í lífi mínu og það er góð tilfinning. Núna get ég tekist á við dagleg verkefni – enda kominn tími til hehe. Skólaverkefnin eru loksins farin að ganga eitthvað, ég er byrjuð að kaupa jólagjafir og bíð bara eftir að fá blekið mitt svo að ég geti sent jólakort. Svo er planið að taka aðeins í gegn hérna áður en fjölskyldan mín kemur en bakstur og konfekt gerð fær að bíða þar til þau koma. Ég er hvort eð er alin upp við að þetta er oft gert svona seinustu daga fyrir jól, þegar skólinn er kominn í frí.
Ég fór í “keilu” í gær, það er að segja við Anna ætluðum í keilu en svo fórum við bara og fengum okkur að borða og komumst ekki lengra vegna seddu og leti. En við borðuðum góðan mat og töluðum mikið saman og það var bara ljómandi gaman. Og svo ætla ég að fara út á föstudagskvöldið með Camillu, Önnu og vinafólki Önnu – sem er að koma að heimsækja hana yfir helgina – og það á eftir að verða ljómandi gaman, ég er búin að ákveða það
Doddi býr hérna ennþá, ég veit ekkert hvort að eitthvað er að gerast í þeim málum. Vonandi þó okkar allra vegna.
NOVEMBER 1ST, 2009
By EDDA RóS
Á þessum örfáu dögum, frá því að við sáum frammá að það væri kannski raunhæft að koma til Íslands um jólin, hefur verðið á farmiðum rokið upp úr öllu valdi. Það er því eiginlega algerlega útséð um það að við komum ekki til Íslands um jólin. Það er ömurlegt að þurfa að taka þessa ákvörðun en það er ekki fyrirgefanlegt að borga amk 10.000 kr á dag fyrir þessa örfáu daga sem við myndum vera á Íslandi.
Við verðum því bara hérna í Solbakken
OCTOBER 28TH, 2009
By EDDA RóS
Ég er byrjuð að vinna í jólaóskalista fyrir okkur Hrafnkel, það er linkur hérna til hliðar
<——- Linkur
Auðvitað er þetta bara gamni gert en kannski ætti þetta að hjálpa einhverjum eitthvað
OCTOBER 9TH, 2009
By EDDA RóS
Það er langt liðið á haustið, næstum farið að koma frost (var bara 2,5°c í morgun birrrr) og jólapælingar farnar að láta bera á sér. Seinustu jól vorum við í Noregi og þar af leiðandi leitar hugurinn heim til Íslands – í mínum huga eru jól á Íslandi það besta í heimi. Að geta verið með fjölskyldunni sinni og vinum, slappað af og étið ógrynnin öll af góðgæti, drukkið malt (og jafnvel styrkt það aðeins með appelsíni) já eða jafnvel jólaöl, spila spil og svo auðvitað að eiga gott afmæli.
Því miður virðist frekar ólíklegt (mjög ólíklegt) að mér verði að ósk minni að komast til Íslands um jólin. Ég var náttúrulega þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að fara til Íslands í sumar, Doddi fór til Króatíu í haust – sem var ekkert ókeypis þó það hafi svosem ekki verið dýr utanlandsferð þannig lagað, íslensku lánin okkar hækka (og það munar um hverja krónu), gengið lækkar (sem þýðir dýrari dkk fyrir okkur) og verðlagið hér (matur, leiga, föt) hækkar. Þar að auki virðist útilokað núna að Doddi nái að vinna eitthvað í janúar, og það er pottþétt útilokað að ég gæti gert það þar sem að ég er í 3 prófum sem verður vandlega dreift yfir allan janúarmánuð. Þar af leiðandi getum við ekki leift okkur að kaupa núna miða til Íslands sem gerir það að verkum að þegar nær dregur og við sjáum betur hvernig peningamál standa að þá verður flugfarið hvort eð er orðið ógeðslega dýrt.
Og þá spyr maður sig, hvað getur maður gert í staðinn? Við Doddi teljumst örugglega sem stórskrítið fólk en við höfum voðalega lítinn áhuga á því að stofna okkar eigin einkajól – bara við 3 saman. Okkur langar til að eyða jólunum með öðru skemmtilegu fólki. Langar ekki bara einhverjum til að koma til Köben um jólin? Eða einhverjar aðrar góðar hugmyndir?
Anyway svona eru jólapælingarnar á þessum bæ, hvaða jólapælingar hafið þið?
DECEMBER 30TH, 2008
By EDDA RóS
Þessar myndir notaði ég í jólakortin 2008. Þessar eru reyndar aðeins kroppaðar vegna þess að myndaforritið hérna vill bara myndir sem eru í gullinsniði.