SEPTEMBER 16TH, 2009
By EDDA RóS
Um daginn var erfið nótt, Hrafnkell vaknaði oft og bað um vatn og hitt og þetta og þar fyrir utan þá var hann líka að vakna og skríða uppí (sem hann gerir ca. aldrei) og svo fara aftur í rúmið sitt. Morguninn eftir vorum við aðeins að ræða þetta og ég sagði að hann mætti ekki vera svona mikið á flandri á nóttunni því að ég gæti ekki sofið þegar hann væri alltaf að koma upp í og fara og koma og fara. Þá leit barnið á mig og sagði með vanþóknunarþjósti “mamma, þegar ég er að reyna að sofna og þú gerir bara svona *mjög ýkt hrotuhljóð* þá get ég heldur ekkert sofnað!”
Það er slæmt að maður haldi svona vöku fyrir vesalings barninu.
Annars virðist vera erfitt að vera 4 ára, já eða barnið er loksins að vinna úr því að vera á svona flandri allt sumarið – pabbaleysið 2x – ofl. Hann vill amk ekki fara í leikskólann, ekki útaf því að það sé svo leiðinlegt eða eitthvað svoleiðis heldur útaf því að hann saknar mömmu sinnar svo mikið – amk segir hann það sjálfur. Hann segir að það skipti sko engu máli hvað það er gaman því að hann saknar mín svo rosalega mikið og í morgun svór hann (segir maður það ekki svona?) að hann myndi sko frekar vera heima hjá mér og gera ekki neitt allan daginn en að fara með einhverjum öðrum að leika sér eða í bíó eða eitthvað.
En eigum við ekki öll svona tímabil þar sem að okkur langar helst að gera eitthvað annað en það sem við þurfum að gera? Enda hefur hann það alveg ágætt í leikskólanum (þrátt fyrir allann söknuðinn). Í kvöld ætla ég að reyna að koma honum extra snemma í rúmið, kannski skilar það sér í glaðari dreng. Við ætlum líka að fara saman og kaupa nýja skó, ódýru H&M skódruslurnar sem ég keypti í sumar eru að syngja sitt síðasta – enda hafa þær enst alveg allan peninginn (sem var ekki mikill). Þessi skókaupaáhugi barnsins (ég mátti sko ekki fara án hans að kaupa skó því að honum vantar svo að fá græna skó) fékk mig til að hugsa til Elvu systur minnar, ætli það væri ekki best ef að Hrafnkell og Elva gætu farið að kaupa skó saman og ég og Magni Steinn gætum bara gert eitthvað annað á meðan
En fólk getur víst ekki gengið um á tásunum allann ársins hring.
FEBRUARY 1ST, 2009
By EDDA RóS
Doddi kemur heim á morgun eða hinn, það er ekki hægt að neita því að við Hrafnkell erum alveg farin að bíða eftir honum. Það verður gott að komast í einhverja rútínu (fyrir mig, rútínan hans Hrafnkels hefur sem betur fer nánast alveg haldist). Það verður gott að fara aftur í skólann, það verður gott að hafa einhvern heima á kvöldin, það verður gott að komast í búð til að gera magninnkaup (mér finnst ég alltaf vera í búð þessa dagana) og það verður æðis að þurfa ekki að setja í og taka úr helvítis uppþvottavélinni alla daga.
Skólinn byrjar líka á morgun, það er komið ýmislegt efni á netið með upplýsingum um önnina og satt best að segja þá veit ég ekki ennþá hvað mér finnst. Ég var samt að rabba við Robert á msn í gær og við komum okkur saman um að nöldra svoldið á mánudaginn, spyrja um það af hverju vantar algerlega kennslu í einu sviði sem okkur finnst mikilvægt, það væri kannski alltí lagi ef það hefði ekki líka vantað kennslu í þessu á þriðju önn og allt var svoldið ruglingslegt á fyrstu og annarri önn vegna þess að kerfið breyttist þar á milli.
Hrafnkell er ógeðslega kvefaður greyið, það hjálpar ekki þegar kemur að pirrunum hans og óþekktaröngunum. Ég reyndi að týna af honum óþekktarangana í gær en hann sagði að ég mætti ekki taka af honum puttana, ég sá samt enga putta bara sett af óþekktaröngum. Annars varð hann verulega reiður við mig í gær, lagðist meira að segja á gólfið (gerist ekki oft) til að leggja áherslu á mál sitt og sagði “mamma þú mátt ekki vera með svona frekju!” svo hugsaði hann sig aðeins um og bætti við “ef þú ert ekki þæg þá tek ég allt dótið þitt og gef einhverri annari mömmu!”
Um daginn þá kláraði ég það sem ég átti af Grey’s Anatomy svo að ég varð að finna mér eitthvað annað til að horfa á. Til að halda mig við sjúkrahúsaþemað þá náði ég mér í ER (Bráðavaktina) og það er hin áhugaverðasta afþreyging. Fyrstu 2-3 þættirnir eru ótrúlega lélegir og maður sér alveg hvernig leikararnir voru ekki alveg komnir í karakter, einnig byrjar fyrsta serían algerlega í lausu lofti. En svo þegar líður á þá verður þetta betra. Það er samt gaman að sjá hvernig George Clooney getur bara alls ekki leikið, mest allt sem hann gerir er að horfa svoldið sexy og glotta dónalega eða þá að hann er svoldið reiður – en samt sexý reiður. Hann hefur þó amk bætt sig með árunum. Það er líka gaman hvað þau segja oft hluti einsog “maður mætti halda að 10. áratugurinn væri ekki kominn” eða eitthvað svoleiðis, sem vísar í það hvað allt var framarlega þarna í “gamla daga” td þá voru þau að spila einhvern tölvuleik til að sýna alla tæknina.
Annars er lítið að frétta nema að það snjóaði aðeins í nótt og í dag, er smá föl. Það er smá notalegt.