meira eitt og annað
Doddi kemur heim á morgun eða hinn, það er ekki hægt að neita því að við Hrafnkell erum alveg farin að bíða eftir honum. Það verður gott að komast í einhverja rútínu (fyrir mig, rútínan hans Hrafnkels hefur sem betur fer nánast alveg haldist). Það verður gott að fara aftur í skólann, það verður gott að hafa einhvern heima á kvöldin, það verður gott að komast í búð til að gera magninnkaup (mér finnst ég alltaf vera í búð þessa dagana) og það verður æðis að þurfa ekki að setja í og taka úr helvítis uppþvottavélinni alla daga.
Skólinn byrjar líka á morgun, það er komið ýmislegt efni á netið með upplýsingum um önnina og satt best að segja þá veit ég ekki ennþá hvað mér finnst. Ég var samt að rabba við Robert á msn í gær og við komum okkur saman um að nöldra svoldið á mánudaginn, spyrja um það af hverju vantar algerlega kennslu í einu sviði sem okkur finnst mikilvægt, það væri kannski alltí lagi ef það hefði ekki líka vantað kennslu í þessu á þriðju önn og allt var svoldið ruglingslegt á fyrstu og annarri önn vegna þess að kerfið breyttist þar á milli.
Hrafnkell er ógeðslega kvefaður greyið, það hjálpar ekki þegar kemur að pirrunum hans og óþekktaröngunum. Ég reyndi að týna af honum óþekktarangana í gær en hann sagði að ég mætti ekki taka af honum puttana, ég sá samt enga putta bara sett af óþekktaröngum. Annars varð hann verulega reiður við mig í gær, lagðist meira að segja á gólfið (gerist ekki oft) til að leggja áherslu á mál sitt og sagði “mamma þú mátt ekki vera með svona frekju!” svo hugsaði hann sig aðeins um og bætti við “ef þú ert ekki þæg þá tek ég allt dótið þitt og gef einhverri annari mömmu!”
Um daginn þá kláraði ég það sem ég átti af Grey’s Anatomy svo að ég varð að finna mér eitthvað annað til að horfa á. Til að halda mig við sjúkrahúsaþemað þá náði ég mér í ER (Bráðavaktina) og það er hin áhugaverðasta afþreyging. Fyrstu 2-3 þættirnir eru ótrúlega lélegir og maður sér alveg hvernig leikararnir voru ekki alveg komnir í karakter, einnig byrjar fyrsta serían algerlega í lausu lofti. En svo þegar líður á þá verður þetta betra. Það er samt gaman að sjá hvernig George Clooney getur bara alls ekki leikið, mest allt sem hann gerir er að horfa svoldið sexy og glotta dónalega eða þá að hann er svoldið reiður – en samt sexý reiður. Hann hefur þó amk bætt sig með árunum. Það er líka gaman hvað þau segja oft hluti einsog “maður mætti halda að 10. áratugurinn væri ekki kominn” eða eitthvað svoleiðis, sem vísar í það hvað allt var framarlega þarna í “gamla daga” td þá voru þau að spila einhvern tölvuleik til að sýna alla tæknina.
Annars er lítið að frétta nema að það snjóaði aðeins í nótt og í dag, er smá föl. Það er smá notalegt.