Upp er runninn fastelavn….
Og það er ekki venjulegt öskudagsveður hérna, það er heiðskýrt, sól og viðbjóðslegur kuldi. Hérna var fyrst vaknaði klukkan 4, ég náði þó að sannfæra barnið að það væri svo sannarlega ekki kominn dagur, næst var vaknað klukkan 7 – sem er töluvert nær því að vera dagur. Þar sem að ég nennti þó ekki alveg á fætur þarna á slaginu 7 þá fór sonurinn og klæddi sig sjálfur, kom svo við og við í rúmið til mömmu sinnar til að fá samþykki – og þurfti nokkrum sinnum að fara og skipta. Við vorum ekki sammála um það hvað passaði best undir búninginn. Svo tókst nú loksins að fá mig á fætur, hann fékk morgunmat og síðan var kominn tími á að fara í get-öpp-ið.
Þvílík hamingja, það var dansað og sungið (“na na na nananana once upon a dream… na na nananana NA nanananananan once upon a dream”) á meðan kjóllinn var græjaður, hárkollan sótt og kórónunni komið fyrir. Útkoman var alveg óendanlega sæt og hamingjusöm Þyrnirós, sem að meira að segja leyfði smá myndatöku

