Afmæli í uppsiglingu

Hér á heimilinu er ungur maður sem þykist ætla að eiga afmæli bráðum, eða eftir ca. 1,5 viku. Ég er reyndar ekkert búin að plana, ætla sennilega að hafa þetta bara einsog í fyrra þar sem ég bauð helstu jafnöldrum, af sama þjóðerni, úr húsinu. Ég meika ekki að fylla íbúðina af krökkum sem ég skil ekki almennilega ;-)

En já það sem er mest inn hjá honum í dag eru auðvitað Barbie og félagar, lego (hann er að átta sig á töfrunum við að eiga eitthvað sem að hann getur rifið í sundur og byggt aftur (eftir leiðbeiningunum auðvitað, hann er meyja) og aftur og aftur) og playmo. Hann segir að playmo sé flottara en lego skemmtilegra.
Hann hefur ekki áhuga á bílum, það heyrir til algerra undantekninga að hann vilji leika sér með svoleiðis. Allt Ben10, gormiti, bakugan og svoleiðis drasl er líka flott, en hann leikur sér ekkert rosalega með það. En það eru til dæmis til Ben10 kubbakallar, sem eru svolítið í stíl við Bionicle, sem að myndu örugglega falla í kramið.

Hann er farinn að passa í föt nr 110.

Ef einhver vill þá get ég alveg farið og keypt pakka til hans frá ykkur (þaes ef þú, lesandi góður, finnur ástæðu til að gefa barninu afmælisgjöf) en þá vil ég helst fá einhver fyrirmæli (td. farðu í hm og keyptu buxur á hann fyrir X mikinn pening eða kauptu lego fyrir hann fyrir x mikinn pening eða eitthvað í þá áttina). Þannig er hægt að spara sér töluverðan pening í póstburðargjöld. Það er helvíti súrt þegar sendingarkosnaðurinn er orðinn hærri en andvirði pakkans, í staðinn væri td. hægt að senda bara kort sem ég myndi setja á pakkann….

Ef einhverjum langar til að gefa honum pening þá er MIKLU gáfulegra að viðkomandi fái bara reikningsnúmerið hans Hrafnkels hjá mér og leggi inn á hann. Ef Hrafnkell fær einhvern pening þá heimtar hann bara að eyða honum í eitthvað barbiedrasl, hann hefur líka engan sans fyrir verðmætum og það endar bara með þrefi um það hvort að hann hafi efni á þessu eða hinu.

Haha shit hvað þetta hljómar einsog betl… en ætli þetta sé það ekki, maður verður jú bara einu sinni 5 ára!

2 Comments

  • By Hrafnhildur, August 25, 2010 @ 23:45

    Mig minnir að hann hafi nú sjálfur verið með ákveðnar hugmyndir um það hvernig hann vildi hafa afmælið sitt í vor þegar ég var hjá ykkur :) hehe til að rifja það upp þá vildi hann hafa fullt af könglum ;o) örugglega reyndar bara af því ég fór að týna þá handa mömmu í föndurgerð en góð hugmynd samt sem áður. ;D

  • By ella, August 27, 2010 @ 07:58

    Skynsamlegar leiðbeiningar. Een, er alveg víst að hann sé ekki búinn að bjóða fjölda manns upp á eigin spýtur? Það væri nú reglulega skemmtilegt fyrir þig. Alveg sérstaklega ef svo skemmtilega vildi nú til að innanum væru krútt sem skilja ekkert í ykkar tungumálum nema “viltukomíammæliðmitt?”

Other Links to this Post

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment

You can add images to your comment by clicking here.