Upp er runninn fastelavn….
Og það er ekki venjulegt öskudagsveður hérna, það er heiðskýrt, sól og viðbjóðslegur kuldi. Hérna var fyrst vaknaði klukkan 4, ég náði þó að sannfæra barnið að það væri svo sannarlega ekki kominn dagur, næst var vaknað klukkan 7 – sem er töluvert nær því að vera dagur. Þar sem að ég nennti þó ekki alveg á fætur þarna á slaginu 7 þá fór sonurinn og klæddi sig sjálfur, kom svo við og við í rúmið til mömmu sinnar til að fá samþykki – og þurfti nokkrum sinnum að fara og skipta. Við vorum ekki sammála um það hvað passaði best undir búninginn. Svo tókst nú loksins að fá mig á fætur, hann fékk morgunmat og síðan var kominn tími á að fara í get-öpp-ið.
Þvílík hamingja, það var dansað og sungið (“na na na nananana once upon a dream… na na nananana NA nanananananan once upon a dream”) á meðan kjóllinn var græjaður, hárkollan sótt og kórónunni komið fyrir. Útkoman var alveg óendanlega sæt og hamingjusöm Þyrnirós, sem að meira að segja leyfði smá myndatöku
6 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI


By Valdís, February 12, 2010 @ 10:22
Þetta er örugglega flottasta Þyrnirós sem ég hef séð!
By Elva, February 12, 2010 @ 12:03
Glæsilegur! Góð stellingin á efri myndinni
By mamma, February 12, 2010 @ 14:52
Ó, Þyrnirós, ó Þyrnirós, þú ert svo falleg að ég gæti borðað þig. Það er sama hvað hann klæðist í hann er alltaf jafnfallegur.
By Ragna, February 12, 2010 @ 17:18
Hann er voða fín Þyrnirós, en aumingja drengurinn þegar hann verður eldri og verður minntur á þetta tímabil…
By Hrafnhildur, February 13, 2010 @ 17:52
Sæti sæti frændi minn alltaf jafn ómótstæðilegur
By Dísa, February 14, 2010 @ 01:50
Hann er snillingur þetta barn. Alveg dásamlegur