Vondur draumur

Í gærkveldi fór ég aðeins seint að sofa, því einsog svo mörg önnur kvöld fékk ég ægilegt hugstrump rétt þegar ég var að búa mig í rúmið og bara varð að græja og gera aðeins áður en ég færi að sofa. Klukkan var því 1:17 þegar ég fór upp í rúm, þar sem ég var þreytt þá las ég eiginlega ekkert og var því klukkan 1:20 þegar ég slökkti ljósið og ákvað að fara að sofa.

Það tók mig smá stund að sofna, mér fannst mér vera óþægilega heitt og ég var með fótapirring. Þannig að ég bylti mér svolítið en það gékk svosem ekki svo langt að ég myndi segja að ég hafi verið andvaka. En þar sem ég ligg þarna og er að reyna að sofna þá opnast hurðin á herberginu mínu og það kemur inn maður – ég sest beint upp (reisi mig upp án þess að nota hendur – skemmtilegt trikk sem ég gæti aldrei gert ef ég væri með fullri meðvitund en þó hef ég amk einu sinni gert þetta áður) og sé að hann er rosalega hávaxinn. En þar sem að það er myrkur í herberginu sé ég bara skuggamynd af honum – engin smáatriði nema að hann er rosalega hávaxinn og ég öskra “get out, get out, get out”… og þannig vaknaði ég, við öskrin í sjálfri mér.

Þar sem að ég hafði ekki einu sinni náð að meðtaka það að ég væri sofnuð tók það smá tíma að meðtaka það að ég væri vöknuð aftur, hjartað barðist um í brjósti mér meðan ég sat í rúminu og starði í átt að “manninum” og reyndi að átta mig á því hvort að hann væri þarna eða ekki. Ég held að ég hafi í raun varla áttað mig á því að þetta var í alvörunni bara draumur fyrr en ég heyrði mjóróma rödd sem sagði “mamma, ég er ennþá alveg rosalega þreyttur” koma úr barnarúminu. Þegar ég hafði sannfært Hrafnkel um að hann mætti sofa meira og sjálfa mig um að ég hefði ekki hrætt líftóruna úr honum þá leit ég aftur á klukkuna og hún var 1:41.

Shit hvað þetta var óþægilegt, ég er ekki að grínast ég drapst næstum úr hræðslu og mér finnst ég ennþá vera í smá adrenalínsjokki. Þó átti ég, sem betur fer, ekkert erfitt með að sofna aftur og svaf ágætlega restina af nóttunni.

4 Comments

  • By Ragna, January 29, 2010 @ 10:56

    omg, er Edward Cullen kominn til Danmerkur? :P

    Vondur draumur samt…

  • By Edda Rós, January 29, 2010 @ 11:04

    Hahaha – já þetta er bara mín einka vampíra ;-)

  • By ella, January 29, 2010 @ 23:02

    Maður les út úr þessari frásögn að það sé hreint ekkert nýjabrum á því hjá syni þínum að vera vakinn með þessum hætti???

  • By Edda Rós, January 30, 2010 @ 18:00

    Sem betur fer er hann nú ekki vanur að vakna við öskrin í mömmu sinni, en hann skammaði mig um daginn fyrir að hrjóta of mikið (ég var að kafna úr kvefi, fyrir utan að ég hrýt örugglega venjulega líka).

Other Links to this Post

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment