Hugmyndaleysi – eiginlega algert neyðarástand
Það ríkir hálfgert neyðarástand á heimilinu. Ég er eiginlega algerlega komin með fullkominn eldunarleiða. Ég nenni ekki að elda mat, ég nenni ekki að undirbúa mat, ég nenni ekki að ákveða mat, ég nenni eiginlega bara engu sem viðkemur mat. Þetta er orðið svo slæmt að ég nenni varla að baka heldur.
Hvað á maður að gera þegar svona ástand ríkir? Einnig langar mig ekkert sérstaklega í mat, ég borða því að maður þarf að borða og útaf því að það er skemmtilegra að borða en að vera svangur.
Gefiði mér hugmyndir af einföldum, góðum kvöldmataruppskriftum. Það er ekki í boði að hafa bara snarl í kvöldmatinn þar sem að við lifum öll 3 á snarli fyrri part dagsins.
Þar fyrir utan þá dreymdi mig að Valdísi og pabba var svo illa við jólaóskalistann minn, þeim fannst það svo mikil frekja í mér að vilja fá knitpro prjónasett. Einsog ég bennti þeim á í nótt þá er þetta svo sniðugt sett því að maður getur tengt saman tvær 120cm snúrur og prjónað stærsta teppi í heimi og þar fyrir utan þá ÞARF ekki að gefa mér það sem er á listanum, þetta eru bara hugmyndir.
2 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By Hrafnhildur, November 9, 2009 @ 23:14
Híhí óþarfa tuð í þessum skyldmennum þínum en já mataruppskriftir uhhhhh pass ég er ekkert duglegri við hugmyndavinnslu matar en enda einhverneigin á að henda bara einhverju saman sem ég náði að fjárfesta í í búðinni þegar ég hafði meira hugmyndaflæði í kvöld var hakk og spagettí
By Elva, November 12, 2009 @ 16:38
Burrítós (hakk, ostur, grænmeti og sósa) er gert hér þegar ég nenni ekki. Svo er það auðvitað pasta og kjötsósa (hinn helmingurinn af hakkinu í toro (eða eitthvað) pokasósu). Fiskur velt upp úr hveiti og kryddi með kartöflum. Upphitaður kjúklingur (því hann er ódýrari í innkaupum en hrár kjúlli, furðulegt en satt) með frönskum. Þarnæsta dag: Kínverskt (afgangurinn af kjúllanum m.a.) með hnetusósu og hrísgrjónum (Jorrit)
Annars virkaði það vel í BNA að gera lista fyrir allan mánuðinn upp á hugmyndaauðgina. En ég hef bara ekkert úthald í svoleiðis fyrirhyggju svo ég hef ekki gert svoleiðis í langan tíma.