könguló, könguló, vísaðu mér á berjamó

Þessa vikuna er ég búin að sitja sveitt (og ógeðslega kvefuð) við saumaskap. Það er nefnilega hrekkjavaka í dag og danir, sem eru sko ekki síðri kanasleikjur en íslendingar, halda upp á þann sið. Þar af leiðandi þurfti ég að sauma búning og Hrafnkell ákvað að það ætti að vera köngulóarbúningur. Aumingja barnið er blessað/bölvað með móður sem vill frekar kaupa efni fyrir 200dkk og sitja svo í 30 tíma og sauma en að kaupa tilbúinn búning á 150dkk (en reyndar í þetta skiptið kostaði efni bara um 100dkk svo að þetta var “ódýrara”).

Hérna er svo afraksturinn, þó að þarna eigi víst eftir að stytta í millilappateyjum sem og lengja skálmar.

P1150101P1150103P1150105P1150106

Og svo skárum við út í eitt flott grasker, það var reyndar geggjað gaman og ég gæti vel hugsað mér að gera það aftur

P1150066

4 Comments

  • By mamma, October 30, 2009 @ 18:25

    Edda m+in, ef þú vissir ekki að þú værir snillingur þá veistu það núna. Þetta er meiriháttar flott.

  • By Pabbi, October 30, 2009 @ 21:18

    Þú ert ótrúleg Edda. Þetta er bara tær snilld og Strákur rosa flottur í þessu.
    Þið eruð flottust.

  • By ella, October 31, 2009 @ 19:56

    Vaaáá!!

  • By Hrafnhildur, November 1, 2009 @ 16:45

    Very very nice me like á þennan búning :o ) Heppinn Hrafnkell að eiga svona duglega og yndislega móður ;)

Other Links to this Post

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment

You can add images to your comment by clicking here.