Jólin jólin allsstaðar….
Það er langt liðið á haustið, næstum farið að koma frost (var bara 2,5°c í morgun birrrr) og jólapælingar farnar að láta bera á sér. Seinustu jól vorum við í Noregi og þar af leiðandi leitar hugurinn heim til Íslands – í mínum huga eru jól á Íslandi það besta í heimi. Að geta verið með fjölskyldunni sinni og vinum, slappað af og étið ógrynnin öll af góðgæti, drukkið malt (og jafnvel styrkt það aðeins með appelsíni) já eða jafnvel jólaöl, spila spil og svo auðvitað að eiga gott afmæli.
Því miður virðist frekar ólíklegt (mjög ólíklegt) að mér verði að ósk minni að komast til Íslands um jólin. Ég var náttúrulega þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að fara til Íslands í sumar, Doddi fór til Króatíu í haust – sem var ekkert ókeypis þó það hafi svosem ekki verið dýr utanlandsferð þannig lagað, íslensku lánin okkar hækka (og það munar um hverja krónu), gengið lækkar (sem þýðir dýrari dkk fyrir okkur) og verðlagið hér (matur, leiga, föt) hækkar. Þar að auki virðist útilokað núna að Doddi nái að vinna eitthvað í janúar, og það er pottþétt útilokað að ég gæti gert það þar sem að ég er í 3 prófum sem verður vandlega dreift yfir allan janúarmánuð. Þar af leiðandi getum við ekki leift okkur að kaupa núna miða til Íslands sem gerir það að verkum að þegar nær dregur og við sjáum betur hvernig peningamál standa að þá verður flugfarið hvort eð er orðið ógeðslega dýrt.
Og þá spyr maður sig, hvað getur maður gert í staðinn? Við Doddi teljumst örugglega sem stórskrítið fólk en við höfum voðalega lítinn áhuga á því að stofna okkar eigin einkajól – bara við 3 saman. Okkur langar til að eyða jólunum með öðru skemmtilegu fólki. Langar ekki bara einhverjum til að koma til Köben um jólin? Eða einhverjar aðrar góðar hugmyndir?
Anyway svona eru jólapælingarnar á þessum bæ, hvaða jólapælingar hafið þið?
7 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By Valdís, October 9, 2009 @ 11:10
Við erum að hugsa um að halda jólin bara í Ásveginum. Það er aldrei að vita nema það verði eitthvað fleiri en bara við þrjú.
Hvernig er það, getið þið fátæka fólkið í Danmörku ekki slegið eitthvað saman með fátæka fólkinu í Noregi og haft gaman?
By mamma, October 9, 2009 @ 14:11
Ég veit að Rögnu langar ekki að vera ein með okkur gömlu um jólin. Henni þótti ekki skemmtilegt á síðustu jólum. Hún væri til í að fara til Danmörku eða Noregs um jólin.
By Ragna, October 9, 2009 @ 14:58
Bara fresta jólunum, það held ég nú.
Mér er eiginlega alveg sama hvar ég eyði jólunum, þó svo að það væri gaman að eyða þeim annað hvort í DK eða NO. Það er náttúrulega miklu ódýrara að fara til Köben en Aalesund, en samt, 35þús er svolítið mikið… iff, ég fíla ekki jól…
By Edda Rós, October 9, 2009 @ 16:16
Ég væri alveg til í að fara til Álasunds um jólin, verst að það kostar líka pening :-/
By Elva, October 10, 2009 @ 09:00
Þetta er hugmynd… Við erum aðeins byrjuð að pæla í þessu. Erum alltof blönk til að fara til Íslands (skæl). En Köben væri kannski gerlegt. Það er spurning um að tékka á gistingu á Amager…
By Edda Rós, October 10, 2009 @ 17:53
Svo er örugglega hægt að leigja íbúð hérna af einhverjum sem fara heim um jólin – pláss þarf ekki að vera vandamál sko
By Hrafnhildur, October 21, 2009 @ 20:48
Búnað tjekka á netið hjá Icelandair yrði það um 46 þús kall að kíkja á ykkur um jól og um 40 þús með Express en ég verðnú að segja klárlega án jeans þá var ég nú búin að vera að spá í þetta í nokkurn tíma hvort ég ætti að kíkja á ykkur um jólin ;o) svo nú getur mar farið að skoða betur fjárhagsstöðuna og tekið alvarlega ákvörðun um þetta mál ;o)