jáhá lín kannski ekki jafn slæm og maður hélt
Ja sey sey. Var að fá lánsloforðið frá lín og það hljómar bara uppá miklu fleiri peninga en við bjuggumst við. Við nefnilega gengum bara frá láninu hans Dodda í haust, því að það var allt svo óljóst með mitt nám, og erum því að græja mitt núna. Einnig þarf að láta endurmeta lánið hans Dodda, það voru nefnilega gerðar breytingar á lín eftir að það var gengið frá því, og reiknivélin segir að við eigum að fá meiri pening í því en upphaflega lánsloforðið sagði.
Þetta gerir það að verkum að það er séns á því að við getum komið heim til Íslands um jólin – við þurfum bara að hafa hraðar hendur og klára að græja peningamálin sem fyrst svo við sjáum hvort að það þetta er raunhæfur möguleiki (og biðja til guðs og annarra vætta að farið hjá Icelandexpress hækki ekki mikið meira)
1 Comment
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By Hrafnhildur, October 28, 2009 @ 23:06
úlala me like