Smá smotterí

Það er löngu kominn tími til að skrifa eitthvað en einhvernvegin hefur verið svo “mikið” að gera. Það virðist líka enginn vera almennilega í blogggírnum þessa dagana.

Anyway þá tókst mér að nöldra mig inn í skólann. Skólinn byrjaði á miðvikudaginn og um miðjan miðvikudag fékk ég tilkynningu um að ég fengi sæti í bekknum. Þetta er bein afleiðing af því að vesalings maðurinn, sem sér um sætisveitingar í þetta nám, var búinn að þola síendurtekna tölvupósta frá mér seinustu vikur þar sem að ég pressaði á hann um að gefa mér endanlegt svar. Þegar ég mætti svo á fimmtudaginn í skólann þá komst ég að því að bekkurinn er ca 35 manns (gróflega áætlað) og það eru yfir 100 manns á biðlista svo að ég tel mig bara nokkuð góða með að nöldra mig inn í bekkinn.

Námið virkar vel á mig, fyrsta önnin verður reyndar frekar þurr en það var alveg vitað fyrirfram, en það er gaman að komast í bekk þar sem flestir virðast actually vera þarna til þess að læra. Það á þó eftir að koma í ljós þegar maður kemst lengra inn í þetta hvort að námið standi undir væntingum. Reyndar eru þær væntingar, því miður, ekkert rosalega háar þar sem að mín kynni af dönsku skólakerfi eru ekki mjög góð. Allt sem ég hef hingað til séð af þeirra skólakerfi bendir til þess að það sé rosalega illa skipulagt og undarlega metið (og léleg samskiptamunstur hjá kennurunum). Vonandi verður KNORD til þess að bæta álit mitt á dönunum.

Doddi er kominn og farinn, kom frá Noregi á laugardagskvöldi og fór svo í morgun til Króatíu í skólaferðalag. Hrafnkell telur sig vera orðinn 4 ára þar sem að við báðum um að það yrði haldið upp á afmælið á föstudaginn í leikskólanum og svo gáfum við honum einn pakka á föstudaginn og fórum svo í sirkus (sem var by the way geggjað kúl). Svo á morgun verður smá sýnishorn af barnaafmæli hérna.

3 Comments

  • By mamma, September 6, 2009 @ 10:29

    Til hamingju enn og aftur með að hafa komist inn í skólann. Og til hamingjum með prinsinn, þó svo að hann vilji vera prinsessa. Knúsaðu hann frá mér. Ég veit ekki hvað hefur ruglast hjá mér en ég var föst í því að hann ætti afmæli 5. sept. Getur þú ekki breytt dagsetningunni í kortinu?

  • By Dísa, September 7, 2009 @ 10:53

    Húrra fyrir þér!!!
    Og húrra fyrir Hrafnkeli sem er orðinn svo stór :o D

  • By ella, September 10, 2009 @ 19:56

    Gott að skólinn skyldi sjá að sér!

Other Links to this Post

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment

You can add images to your comment by clicking here.