dagur 2
Já eða ætti maður að segja nótt 2? Amk þá er Hrafnkell búinn að sofa tvær nætur bleyjulaus og ekkert slys. Þetta þykir nokkuð merkilegt hérna á heimilinu þar sem að ákvörðunin um að prufa bleyjuleysið var tekin útaf því að við nennum ekki að kaupa fleiri bleyjur.
Vonandi heldur þetta bara áfram að ganga svona vel
Hrafnkell er amk mjög ánægður með að færast einu skrefi nær því að vera jafn stór og Magni Steinn. Við vorum aðeins að ræða þá frændur um daginn og það þótti ekki lítið merkilegt þegar ég sagði að Hartmann væri smábarn, Hrafnkell væri krakki en Magni Steinn væri alveg að verða unglingur og að unglingar væru krakkar sem væru að breytast í fullorðna. Það fannst Hrafnkeli sko kúl, að hans eigin frændi væri að fara að breytast í fullorðinn – einsog fyrir galdra.
Þá ákvað Hrafnkell líka að þegar hann yrði fullorðinn, einsog Magni Steinn, þá ætlaði hann sko að fara að keyra um í bíl með Magna Stein og hann ætlaði sko sjálfur að keyra en Magni Steinn á að sitja í mömmusæti – og þeir ætluðu sko að drekka kók líka! Hann ætlar greinilega að gera allt sem hann má ekki gera núna.
En já það ku vera gott að vera stór einsog Magni Steinn
5 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By mamma, September 23, 2009 @ 21:57
Mér finnst hann stór og flottur eins og hann er. Stundum vantar svona stóran og duglegan strák til að hjálpa ömmu sinni.
By Elva, September 25, 2009 @ 08:54
Vonandi gengur vel að sleppa bleyjunni. Ekki það að við Magni vorum að pæla í hvernig bíll þetta væri eiginlega? “Mömmusætið” hjá Magna er nefnilega ökumannssætið.
Þið Doddi verðið greinilega að stokka upp í verkaskiptingunni
By Edda Rós, September 27, 2009 @ 13:04
Sko í fyrsta lagi er Doddi ekkert sérstakur aukabílstjóri og í öðru lagi hefur hann miklu meiri ánægju af því að keyra en ég. Ég ætla ekki að heimta að fá að keyra bara til að gera einhverjum rauðsokkum til geðs – alveg einsog ég nenni ekki að skipta um dekk á bílnum ef ég get fengið einhvern annan til að gera það (og ég drep mig ekki við að opna krukkur ef ég get látið Dodda gera það osfr)
By Hrafnhildur, September 27, 2009 @ 14:20
hehehehe þeir Magni fá sér bara svona bíl með aukagræjum eins og í ökukennslubílum þá geta báðir skipt sér af akstrinum og skiptir ekki máli hvor er í hvaða sæti
ekki að ég mæli með því þar sem að slys geta nottla hlotist af því. Allavega varð móðursystir ekkert ofurkát þegar mamma hamraði allt í einu á bremsunni þegar þær voru saman í bíl og eina afsökunin hennar mömmu var: hva bara að prófa hvernig þetta virkar
By ella, September 29, 2009 @ 23:53
Aldeilis bjartar framtíðarhorfurnar hjá unga manninum!