Fyrir þá sem hafa áhuga

Síðan okkar er orðin eins tilbúin og hún verður nokkurntíman.
Endilega skoðið þetta og munið að a) Við urðum að þóknast kúnna með margt og rembast við að gera hlutina þokkalega og b) Síðan er bara “prototype” og þar af leiðandi töluvert frá því að vera einsog lokaútgáfa myndi vera.

Á heildina er ég mjög sátt með síðuna, margt tæknilega flókið sem liggur að baki, mikil vinna í grafík – bæði hugmyndavinnu og myndvinnslu, og það þrátt fyrir að hugmyndafræðinni hafi verið breytt algerlega (af hálfu kúnnans) á seinasta fundið fyrir páska svo að segja má að þessi síða hafi verið unnin á 1 -1 1/2 mánuði.

Ath: Það eru 2 valmöguleikar um tungumál, enska og danska. Við erum bara búnar með “dönsku” útgáfuna. Ég segi “dönsku” með gæsalöppum vegna þess að í raun eru 2 bls á dönsku og hinar á ensku/lorem ipsum (lorem ipsum er þykistunni texti sem þýðir ekki neitt en lítur út einsog alvöru texti og er mjög oft notaður til að fylla upp í þegar það vantar rétta textann)

Til Jorrit: Ég veit að þetta er flash síða, ég geri mér grein fyrir hinum ýmsu vankönntum sem að fylgir því að gera flash síðu. Ég geri mér grein fyrir því að það er enginn “preloader” og grafíkin er í háum gæðum (sem lengir “loading” tímann). Ég geri mér grein fyrir því að það er ekki hægt að nota “back” og “forth” í vafranum til að komast á milli síðna. Við minnumst á þetta allt í skýrslunni og nefnum hugsanlegar úrbætur á málinu (og þar stærst að hafa einfaldlega aðra síðu í xhtml (já eða php eða asp og javascript) þannig að notandinn hafi val milli þess að nota þessa síðu eða alvöru síðu).

Síðan okkar

Verkefninu verður svo skilað inn á fimmtudag (í seinasta lagi) og svo er maður “frír” þangað til í prófinu…

7 Comments

  • By Elva, June 2, 2009 @ 01:45

    Ég skal minna Jorrit á að skoða.
    Til hamingju með að vera komin á seinasta sprettinn með þetta sérdeilis skemmtilega verkefni ;)

  • By Valdís, June 2, 2009 @ 11:26

    Þetta er rosalega flott hjá ykkur! Ég er sérstaklega hrifin af hjólinu með möguleikunum, það er flott og hefur örugglega tekið smá pælingar að láta það virka.

    Til gamans vil ég samt benda á að lorem ipsum er ekki merkingarlaus texti, heldur hluti af ritgerð um siðfræði frá því 45 eftir krist. http://www.lipsum.com (Dæmi um algjörlega gagnslausa þekkingu, sem getur samt verið gaman að vita).

  • By Valdís, June 2, 2009 @ 11:27

    Æ, þetta átti víst að vera fyrir krist, ekki eftir krist…

  • By Edda, June 2, 2009 @ 12:20

    Hey cool, eg a pottthett eftir ad lesa mer adeins meira til um lorem ipsum ;-)

  • By Jorrit, June 2, 2009 @ 15:29

    @ Edda: Flott hjá ykkur. Og í heildini er flash ekki að trufla mjög mikið :) Og eins og Valdís: þetta snúanði hjól er flott kerfi. Er bara að spyrja eina: hvernig eru þessi bygingar á forsíðuna tengd fyrirtækinu?
    @ Valdís: LOL enn meira gagnlausa upplysingar. wallbash-broskall.
    Það er greinilegt að ég er búinn að vinna mér in í hóp sem passar vel með mér. ;)

  • By Edda Rós, June 2, 2009 @ 19:29

    Sko í raun hefðum við aldrei sett þessi hús ef að það hefði ekki komið ósk frá kúnnanum okkar um að hafa bakgrunninn með teiknimyndalegri náttúru. Móðurfyrirtækið verður með heimasíðu með jörðinni þar sem að að þú getur farið hringinn í kringum hnöttin og átt í “samskiptum” við hina ýmsu hluti sem verða á vegi þínum. Við ákváðum að þar sem að móðurfyrirtækið er “global” fyrirtæki en þetta fyrirtæki er “lokal” að því leyti að það er nokkuð bundið við Danmörku að staðsetja okkur í borg (og notuðum þekktar Kaupmannahafnískar byggingar). Ég fór næstum að grenja þegar ég vissi að síðan okkar þyrfti að vera í sama stíl og síðan hjá móðurfyrirtækinu þar sem að sú síða var eitt það hræðilegasta sem ég hef séð.
    Þessi síða er í raun glötuð að því leyti að notandinn veit ekkert um hvað málið snýst fyrr en hann er kominn inn á undirsíðurnar. Ég tel að heimasíður þurfi að segja strax um hvað málið snýst – fólk á ekki að þurfa að kanna til að komast að því. Það eru örfá fyrirtæki (einsog CocaCola, Pepsi, McDonalds, Nokia, Disney, Nike, Microsoft, Apple osfr) sem gætu gert svona heimasíðu sem segir ekki um hvað málið snýst og það er einfaldlega vegna þess að þegar þú sérð logo þessara fyrirtækja þá veistu um hvað málið snýst. En ég held að TradeMate sé ekki alveg komið á þann stað í lífinu ennþá amk.

  • By Hrafnhildur, June 8, 2009 @ 22:58

    Flott síða hjá ykkur :o )

Other Links to this Post

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment