True neutral eða kannski lawful neutral?

Einu sinni, fyrir langa langa löngu (amk virðist það vera það langt síðan núna), þá spilaði ég hlutverkaspil með systrum mínum og mökum okkar. Þegar við gerðum okkur karaktera þá þurfum við að ákvarða hvernig þeir litu á heiminn, hvernig þeir brygðust við aðstæðunum og umheiminum. Þetta skiptist í 9 stig frá því að vera lawful good, þeir bestustu af þeim bestu, niður í að vera chaotic evil, þeir verstustu af þeim verstu. 

Ég hef lengi vel talið mig sjálfa vera svoldið chaotic good, semsagt mestmegnis góð en samt hafa lög og reglur ekki skipt mig svo miklu máli. 

Þegar ég hinsvegar lít á mál líðandi stundar og hugsa um það hvert sé mitt álit á málunum þá held ég að ég sé kannski ekki svo mikið good ennþá. Enda sakar fólk mig oft um að vera bæði kaldhæðin og óþolandi raunsæ. Ég á það til að sjá hlutina einsog þeir eru og ég hef lítinn áhuga á því að sykurhúða eitt né neitt. 

Það var köttur myrtur á Húsavík um daginn. Ég skil vel að kötturinn hafi verið tekinn af lífi, ég vorkenni eigendum hans ekki rassgat – enda er lausaganga katta bönnuð á Húsavík. Ekki misskilja, ég elska ketti, en ég efast um að kötturinn hafi þurft að þjást neitt. Mér finnst meira að segja líklegt að ef kötturinn var vanur að fá að vera úti að þá hefði hann orðið þunglyndur og átt rosalega erfitt ef hann hefði verið neyddur til að vera inni og þar af leiðandi mannúðlegt (orð sem ég reyndar þoli ekki) að taka hann af lífi. Það sem er slæmt í þessu máli er tvennt, annarsvegar (og aðalatriðið í mínum huga) þá var skotið af byssu innanbæjar og (shit ég hugsaði og en skrifaði fyrst and) hinsvegar að það hefði mátt gefa eigendunum smá tækifæri að ná í köttinn.

Annað mál er raunveruleikasjónvarpsstjörnuwannabeið sem lét taka sig fyrir smygl í Brasilíu. Ég get ekki vorkennt honum mikið, hann kom sér í þessi vandræði sjálfur – hann hefði meira að segja bara getað reynt að klára smyglið, sem hann guggnaði á, í Danmörku og þá hefði hann fengið að vera nágranni minn og gist á nokkuð eðlilegu fangelsi (held ég amk, þekki reyndar ekki vel húsakostinn í fangelsum hér í landi en þau hljóta að vera betri en í Brasilíu). Mér finnst hlægilegt að það sé verið að halda söfnun fyrir hann. Mér finnst fáránlegt að það sé verið að draga kynhneigð hans inn í málið, einsog það skipti einhverju máli hvort að hann er hommi eða ekki? Eiga hommar erfiðara að láta ríða sér í rass á portúgölsku en þeir sem eru straigt? Mín vegna mega íslensk stjórnvöld alveg beita sér fyrir því að ná í gegn framsalssamningi milli Íslands og Brasilíu, þangað til má vesalings Ragnar bara vera þarna. Það eru amk 2 aðrir íslendingar í fangelsum í Brasilíu, við vitum ekki einu sinni nöfn þeirra – en jú kannski eru þeir ekki hommar og eiga því ekki jafn bátt með að vera í þriðja heims fangelsi. Einhverstaðar, í umræðum um þessi mál, las ég að fangelsisvist fyrir einn fanga í mánuð kostaði ca jafn mikið og ein ráðherralaun. Ég væri alveg til í að fá þau laun, já eða bara hlut af þeim launum, fyrir það að fara ekki í fangelsi. En bottomlineið er að ég get bara ekki fengið það af mér að vorkenna honum rosalega, það eru örugglega margir sem hafa það jafn skítt ef ekki meira skítt en hann algerlega án þess að einu sinni að hafa kallað það yfir sig sjálfir. 

Að lokum þá var umræða á barnalandi/er um daginn um framhjáhald. Ég sagði að ef minn maður héldi framhjá mér þá teldi ég hann 100% ábyrgan fyrir framhjáhaldinu og viðhaldið væri í raun stikkfrítt í mínum augum – viðhaldið var nefnilega ekki að halda framhjá mér heldur maðurinn. Í mínum huga er kynlíf sem maður velur ekki sjálfur nauðgun, ég get ekki stundað kynlíf með neinum sem ég vil ekki nema að mér sé nauðgað. Nauðgun er ekki framhjáhald, ekkert frekar en annað ofbeldi. Þar af leiðandi get ég ekki séð aðstæður þar sem að maðurinn lendir í framhjáhaldi, það er alltaf hans val. Viðhaldið er bara ekki í sambandinu og hefur ekki lofað mér einu né neinu (ég liti reyndar öðruvísi á málin ef viðhaldið væri vinkona mín eða systir, haha eða móðir). Vegna þessara skoðanna minna voru nokkrar konur sem voru sannfærðar um að ég hlyti að vera viðhald einhvers, það myndi engin nema viðhaldið sjálft halda því fram að viðhaldið væri stikkfrítt. Ég veit reyndar ekki viðhald hvers ég sé og ég hef hugsað meira um þetta og ég verð bara ennþá sannfærðari um það að ef Doddi héldi framhjá mér þá myndi ég algerlega kenna honum um það. 

Og ennþá meira að lokum þá hafa nokkuð oft verið “save the world” verkefni í skólanum og mér finnst þau alltaf jafn asnaleg. Ég hef engan áhuga á því að eyða orku í að bjarga einhverju sem er ekki hægt að bjarga. Það er nefnilega ekkert sem við, mannfólkið, getum gert sem að mun eyðileggja líf á jörðinni – nema kannski ef okkur tækist að sprengja sjálfa plánetuna í loft upp. Það versta sem við gerum jörðinni er líka eitthvað sem við munum seint hætt að gera, það er ekki að nota bíla eða hætta að henda rusli, að borða meira grænmeti eða ganga í lífrænum fötum neibb það versta sem við gerum er að ríða of mikið og of oft án getnaðarvarna. Það er alltof mikið af fólki í heiminum og satt best að segja þá er ekki til mannúðleg (ohhh ljóta orðið aftur) leið til að fækka okkur. Það eru til margar ómannúðlegar leiðir, svo eru margar náttúrulegar leiðir en við erum dugleg að berjast á móti þeim öllum. 

Hinsvegar vil ég að við vinnum að því að gera jörðina að þægilegri stað fyrir fólk að búa á og í því felast hlutir einsog minni mengun, vernda náttúruna osfr. En við björgum ekki heiminum, sama hvað við gerum – góða hliðin er reyndar sú að við eyðum honum ekki heldur. Við erum bara litlir ómerkilegir apar sem finnst gaman að segja sögur og að ríða.

2 Comments

  • By Valdís, May 9, 2009 @ 15:22

    Ég er greinilega ekkert voðalega góð heldur, því að ég vorkenni kettinum ekkert sérstaklega, né eigandanum og því síður dópsmyglaranum í Brasilíu. Ég held samt að ef ég myndi uppgötva framhjáhald hjá mínum manni, þá ætti ég alveg til reiði handa þeim báðum, honum og viðhaldinu.

  • By Hrafnhildur, May 9, 2009 @ 20:23

    já nei ég vorkenni kettinum ekkert og ekki eigandanum þar sem jú hann hlýtur nú að hafa vitað af því að það væri bann við lausagöngu katta, og fyrir mína parta hef ég aldrei skilið þá hugsun hjá fólki að leyfa köttum sínum að ganga um lausum og ekkert sé í raun gert til að hamla þeim för en allt verður brjálað um leið og hundur sést án ólar og eiganda. Þetta er algert misrétti á milli katta og hunda og ég til dæmis hélt fyrirlestur um þessa skoðun mína hér í denn í tjáningu hjá Benna Braga :)
    Með smyglarann: GOTT Á HANN.

Other Links to this Post

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment

You can add images to your comment by clicking here.