Grænmetisbrownie ;-)
Ég var eitthvað að gúggla, leita að leiðum til að plata soninn til að borða meira (eitthvað) grænmeti og ég fann þessa uppskrift, ég ákvað að prufa hana og niðurstaðan var nokkuð góð – mætti vera sætari en samt nokkuð góð.
- 85 gr súkkulaði
- 1/2 bolli gulrótamauk (gufusoðnar gulrætur mixaðar vel með smá vatni)
- 1/2 bolli spínatmauk (ég gufusauð frosna spínatköggla og mixaði þá svo vel)
- 1/2 bolli púðursykur
- 1/4 bolli ósætt kakó
- 2 matskeiðar mjúkt smjörlíki
- 2 teskeiðar vanilluextract
- 2 stórar eggjahvítur
- 3/4 bolli hveiti
- 1/2 tsk lyftiduft
- 1/2 tsk salt
Hitið ofninn í 175°c. Smyrjið 20x20cm form. Bræðið súkkulaðið . Blandið saman í skál grænmetinu, sykrinum, kakóinu, smjörlíkinu, vanillunni og brædda súkkulaðinu og hrærið vel saman (1-2 mínútur). Blandið eggjahvítunum vel saman við. Blandið svo hveitinu, lyftiduftinu og saltinu rólega saman við með sleif.
Setja deigið í formið og baka í 35-40 mínútur, kælið vel áður en kakan er skorin niður í hæfilega stóra bita.
3 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By mamma, April 30, 2009 @ 14:05
Hvernig smakkaðist? Borðaði prinsinn eitthvað?
By Edda Rós, April 30, 2009 @ 21:12
Hurru hann borðaði og fannst gott, það sem meira er að pabbinn borðaði líka (og trúði svo ekki þegar ég sagði honum hvað væri í kökunni). Þetta er ágætiskaka en ég hugsa að ég prufi að gera hana pínu sætari næst.
By Helga María, May 1, 2009 @ 08:58
Takk fyrir þessa Edda. Ætla að prufa hana a grænmetis gikknum mínum;)