Skrítinn draumur
Mig dreymdi skrítinn draum, mér leið eiginlega verulega illa yfir honum þegar ég vaknaði.
Mig dreymdi að ég var að fela mig því að ég vildi ekki að öldruð frænka mín (well ekki alvöru frænka heldur kona föðurbróðurs míns) sæi mig. Hún var svo reið yfir öllu útaf því að það væru svo margir látnir og frænka mín (dóttir hennar) átti í fullu fangi með að passa hana. Ég var svo viss um að ef gamla konan sæi mig þá yrði hún ennþá sorgmæddari (sem ég held reyndar að sé ekki satt) og ég grét og grét yfir því að henni leið svo illa. Semsagt alveg rosalegt drama. Ég vona að svona rosalega tilfinningaþrunginn draumur þýði eitthvað gott, sérstaklega fyrir þennan væng af fjölskyldunni, er ekki yfirleitt annars þannig að draumar eru öfugsnúnir (svona ef maður tekur eitthvað mark á þeim yfirleitt)?