Heimsóknaskortur

Það er sko greinilegt að fólk kemur ekki nógu oft í heimsókn hérna. Það vill nefnilega svo til að það hefur verið nóg að taka allt í gegn fyrir hverja heimsókn (svona ca.) og svo halda hlutunum bara við þess á milli. Núna hefur enginn komið í heimsókn síðan Ragna var hérna (ja fyrir utan skólafélaga) og þar af leiðandi var ekki vanþörf á því að skúra all hressilega og þurrka af. Ekki að það hafi allt verið orðið beinlínis ósnyrtilegt enda höfum við nokkuð oft byrjað að taka allt í gegn en gólfið var þó orðið óþarflega skítugt.

Við kennum ykkur þar með um skítinn á gólfunum. Svo er reyndar líka sú staðreynd að í eldhúsinu eru mattur gólfdúkur og maður þarf að hafa krafta í köglunum til að skúra það gólf, moppan rennur ekkert ljúflega þar um. Mig langar til að benda ykkur á að ef þið vinnið í lottó og viljið koma okkur skemmtilega á óvart þá væri alls ekki illa séð að fá roombu og/eða scoobu.

No Comments

No comments yet.

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment

You can add images to your comment by clicking here.