ég er reið, ógeðslega reið

Ég er eiginlega bara rétt rúmlega brjáluð út í bankann okkar núna. Þetta eru andskotans helvítis glæpamenn.

Þegar hrunið varð þá reyndum við að millifæra peningana okkar til DK, ein færsla komst í gegn (10.000dkr). Við þökkuðum okkar sæla og borguðum leiguna. Nokkrum dögum seinna þá var peningurinn sendur aftur til Íslands og við sátum eftir algerlega á kúpunni 0g í stórskuld við bankann okkar en reyndar búin að redda húsnæðinu þann mánuðinn.

Núna vill bankinn að við borgum þeim peninginn. Þeir halda því fram að millifærslan hafi farið til dk en vegna mistaka hafi einnig haldið áfram að vera peningur inn á reikningnum svo að þeir segja að við skuldum þeim 264.300kr fyrir pening sem var sendur aftur heim.

Við erum búin að útskýra nákvæmlega fyrir þeim hvað gerðist og hvernig það gerðist en nei þeir vilja ekki viðurkenna að við skuldum þeim ekki jackshit fyrir þetta. Næsta skref er að senda þeim screenshot’s af danska netbankanum þar sem það sést svart á hvítu að þarna kom peningurinn inn og þarna fór hann aftur til baka. Ef það virkar ekki þá verður maður bara að finna hálfitana sem eru á bak við þessar ásakanir sjálfur með rör og gaddavír – andskotinn hafi það þetta er ömurlegur andskotans skítabanki!

6 Comments

  • By Hjödda, March 22, 2009 @ 22:46

    Hæ, hæ ég skil að þér sé ansi heitt í hamsi, en maður skilur bara ekki baun í þessu kaosi öllu saman.
    Getur þú sent mér netfangið þitt? Talvan hrundi eftir áramótin og það týndust öll netföng.

  • By Elva, March 23, 2009 @ 01:01

    Ég verð að tjá innilega samúð mína. Að eiga við þessa banka er bara alveg hryllilegt :(

  • By mamma, March 23, 2009 @ 10:44

    Þetta er alveg ótrúlegt. Það virðist vera að það séu einhverjir sem ætla sér að græða á Íslendingum. Þið eruð með yfirlit frá íslenska bankanum líka. Betra að vera með allt til að sýna. Það er bara svo erfitt að standa í svona, en gangi ykkur vel í baráttunni.

  • By Valdís, March 23, 2009 @ 11:42

    Djös fúlmennska er þetta! Og asnalegt ef þeir geta ekki haldið betur utan um færslurnar en þetta! Mest lélegt.

  • By Valdís, March 23, 2009 @ 11:58

    Smá spurning: Er þetta danski eða íslenski bankinn sem er með leiðindi?

  • By Edda Rós, March 23, 2009 @ 12:23

    Þetta er sá íslenski sem lætur svona.

Other Links to this Post

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment