Mangókarrýkjúklingur
Ég fann þessa mögnuðu uppskrift á matsedillinn.is og þetta var svo hrikalega gott að ég ákvað að blasta þessu hérna inn:
500gr kjúklingabringur
4 hvítlauksrif
250ml rjómi
½ -1 krukka mangó chutney
1msk karrý
Salt og pipar
Hrísgrjón og salat
Kjúklingabringurnar skornar niður og steiktar á pönnu með salti og pipar. Þegar þær eru nánast steiktar (kjötið nokkuð vel lokað) þá á að setja hvítlaukinn, niðurskorinn (eða niðurrifinn einsog ég gerði það), út á kjötið og svo rjómann (ég notaði matreiðslurjóma), mango chutney-ið og karrýið. Blandað saman og svo látið malla í ca 15 mínútur. Borið fram með soðnum hrísgrjónum og salati.
Þetta er geðbilað gott, maður finnur allt í senn sæta bragðið af mango chutney-inu, hvítlaukskeim (sem er þó ekki yfirdrifinn) og karrýkeim. Bragðið helst síðan leeeeengi í munninum á manni þannig að maður nýtur matarins þegar maður er búinn að borða líka
3 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By Pabbi, February 25, 2009 @ 14:07
Maður fær nú bara vatn í munninn af þessari lýsingu.
By Edda Rós, February 26, 2009 @ 00:35
Meira að segja Hrafnkell hrósaði mér fyrir matinn og hann er yfirleitt mjög hreinskilinn þegar hann er að gefa álit sitt á mat
By Dísa, February 26, 2009 @ 13:12
umm þetta er geðveikt gott. Það er líka gott að nota pínu chili. Það virkar fínt með karrýinu.
En gaman að vita að þið séuð að koma heim. Strax farin að hlakka til!!