Fyrir þá sem vilja vita
Kaupmannahöfn til Reykjavík
Flug 1 fimmtudagur, 2. apríl 2009
Brottför: 19:45 Kaupmannahöfn, Danmörk – Copenhagen Flugvöllur, Terminal 3
Komust. 20:55 Reykjavík, Ísland – Keflavik International
Flugfélag: Icelandair FI213 Flugvél: 75W
Fargjald : Economy Class/Lægsta fargjald
Farangur: 20 kíló á farþega
Reykjavík til Kaupmannahöfn
Flug 1 sunnudagur, 19. apríl 2009
Brottför: 13:15 Reykjavík, Ísland – Keflavik International
Komust. 18:15 Kaupmannahöfn, Danmörk – Copenhagen Flugvöllur, Terminal 3
Flugfélag: Icelandair FI212 Flugvél: 75W
Fargjald : Economy Class/Lægsta fargjald
Farangur: 20 kíló á farþega
9 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By Ragna, February 22, 2009 @ 13:23
jey
By Bobba amma, February 22, 2009 @ 14:19
Frábært!!!
By Valdís, February 22, 2009 @ 14:44
Frábært! Öll þrjú?
By Edda Rós, February 22, 2009 @ 14:45
Jamm, öll þrjú, saman í sætaröð 29 (d-e-f)
By Inga litla, February 22, 2009 @ 16:54
Jei
)
)
)
Líst vel á þetta
Hlakka ekkert smá til að sjá ykkur
Kærar kveðjur
By Valdís, February 23, 2009 @ 02:58
Það er framför að fá þrjú sæti saman. Annað en í síðustu ferð þar sem þessi snillingur í innrituninni vildi hafa hálfa vélina á milli þín og Hrafnkels.
By Elva, February 23, 2009 @ 12:07
Oh, hvað ég öfunda ykkur, en á góðan hátt
By Inga litla, February 23, 2009 @ 14:06
Man samt alltaf eftir því síðasta vor, þegar snillingarnir á Tenerife settu okkur aftast í vélina öll saman, eða já eitt öðru megin við ganginn, en samt sem áður saman.. Þegar við komum í vélina þá var tvíbókað í sætin, og vá hvað það var erfitt að bíða með börnin meðan fólk var að labba fram og til baka, sérstaklega eftir 4 tíma seinkun og mig langaði svoo heim, og svo þegar allt kom til alls þá var líka búið að bóka þessi sæti, sem átti ekkert að gera, þetta var frátekið fyrir flugfreyjurnar.. Verst að vita ekkert hvar maður sæti.. Og einmitt daman ekki að skilja að það væri ekki hægt að fá eitt sæti hér annað þar og kannski tvö saman einhversstaðar.. Á endanum færðu sig einhverjir þannig að ég sat saman með börnin hjá mér og Jón fyrir aftan mig.. Enda voru allir að vorkenna mér og ég var farnin að skæla yfir því að flugfreyjan var ekki einmitt að fatta að ég vildi hafa börnin hjá mér.. Skil ekki að þetta sé svona flókið.. Þegar allir innrita sig saman sérstaklega.. en já jæja.. Annars er þetta snilldar mynd sem Hrafnkell er búinn að teikna.. Árni er liggur við ennþá að gera sömu höfuðfætluna og hann gerði fyrir rúmu ári síðan.. Aðeins farin að bæta í, tönnum og svona, en ekki jafn flottar og hjá Hrafnkeli
Kveðjur
By Elva, February 24, 2009 @ 08:11
Já, úff. Þegar ég og Magni flugum vestur um haf, 5 tíma flug, átti hann að sitja 2 röðum fyrir framan mig og við gluggann. Ég átti að vera við gluggann hinum megin. Ég hefði ekki einu sinni séð hann hvað þá annað! Flugfreyjurnar skildu alveg vandamálið og voru frekar fúlar þeim sem skipulögðu sætavalið því það voru víst 3 hópar barnafólks í vélinni í sömu stöðu. Og full vél. Eftir mikið vesen, því það vildi enginn færa sig, lét lítil Kanadísk/Kínversk kona sig hafa það. Djöfull var ég fegin.