The Secret Dreamworld of a Shopaholic – fyrsta jólabókin

front page of the book The secret dreamworld of a shopaholic
Ég er búin að lesa fyrstu bókina í jólabókaflóðinu (hehe þvílíkt flóð, alveg 4 bækur – en anywho) og það var þessi bók, sem ég fékk frá Rögnu systur. Ég hef í þónokkurn tíma haft augastað á þessari bókaseríu en aldrei komið mér í það að lesa bækurnar.
Bókin var alveg einsog ég ímyndaði mér, þetta er svona léttlestrarafþreying fyrir stelpur. Það sem gerði þessa bók aðeins öðruvísi en flestar svoleiðis bækur er sú staðreynd að aðalsöguhetjan er algerlega óþolandi, ég gat varla með nokkru móti náð því hversu vitlaus hún er. Það skánaði þó í endan þegar rættist aðeins úr henni og fjárhagnum – en shit hvað ein manneskja á að geta verið vitlaus og erfið.
Þessi bók er ágætis lesning, afþreyingarbók… Takk fyrir mig
2 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By Ragna, January 2, 2009 @ 17:41
haha, ekkert mál. Gellan er pretty much frekar pirrandi og vitlaus í öllum bókunum, en mér finnst þær samt æði
By Álfhildur, January 10, 2009 @ 12:40
Bíddu er til heil sería??? Ég verð að nálgast þær í júní