Próf á morgun

Það er próf á morgun, fyrra prófið af 2. Ég hef ekki verið mjög stressuð, ég hef eiginlega frekar verið stressuð yfir stressskortinum í mér. Sérstaklega núna þegar er að koma í ljós að danski bekkurinn er að fá töluvert hærri einkunnir en við. Ekki að það komi algerlega á óvart – maður hefur alveg orðið var við það viðhorf hjá sumum kennurunum að danski bekkurinn sé eðal og við séum bara svona auka. Einnig var einn kennarinn okkar á þessari önn algerlega ótalandi á ensku, við þoldum hann ekki. Eða réttara sagt þá var svo erfitt að átta sig á því sem hann var að segja að maður nennti bara ekki að fylgjast almennilega með, hann byrjaði á setningu, hætti í henni miðri og byrjaði á annarri, hætti í henni miðri og byrjaði á þeirri þriðju, svo hætti hann í henni  miðri og kláraði setningu nr 2, já eða næstum því kannski þurfti hann að hætta aftur til að klára setningu nr 1. Svona talaði hann lengi lengi algerlega án þess að klára eina einustu setningu heila. En danski bekkurinn elskaði hann, sagði að hann væri geðveikt góður kennari osfr osfr.

En anyway þá hefur, held ég, enginn í mínum bekk fengið hærra en 7 enn sem komið er, á meðan 2 heilir hópar í danska bekknum hafa fengið 12. (kerfið er 00-0-2-4-7-10-12 og það eru 00 og 0 sem er fall). Kennarinn sem er prófdómarinn okkar er kóðari, eða réttara sagt hann er datamatician sem væri þá gagnagrunnafræðingur??? hann sérhæfir sig í SQL og mySQL og því hvernig það vinnur með php (boring – boring – BORING), hinn prófdómarinn, sá sem vinnur ekki hjá skólanum, virðist vera (ef gúgglið okkar virkaði) einhver sem að er með doktorsgráðu í gagnagrunnsfræðum, it-solutions (netlausnum?), og einhverju fleiru leiðinlegu. Semsagt þetta lofar ekki góðu, en það er aldrei að vita kannski verða þeir skemmtilegir…

En jæja það er víst best að fara að gera eitthvað af viti…. Wish me hard work!

2 Comments

  • By Ragna, January 13, 2009 @ 15:03

    jájá, ég óska þér erfiðrar vinnu!! og góðs gengis eða fótbroti eða bara því sem þú vilt! En það er náttúrulega heimskulegt að láta kennara kenna alþjóðlegum bekk þegar hann talar ekki ensku. Og náttúrulega bara heimskulegt af kennaranum að taka að sér svoleiðis kennslu… en þeir eru svo ligeglad þarna baunverjarnir…

  • By Elva, January 14, 2009 @ 06:39

    Síðan vill ekki leyfa mér að kommenta á 12ið þitt svo…
    TIL HAMINGJU!!!
    Í sambandi við þennan kennara er ég frekar sammála Rögnu en hverskonar talandi er það að klára ekki setningar? Jafnvel þó maður kunni illa málið? Reyndar var einn uppáhalds kennarinn minn í mannfræðinni svolítið svoleiðis (á ísl nb) og það var ekki nokkur leið að glósa upp eftir honum, amk ekkert sem meikaði sens þegar kom að próflestri. Kemur kannski ekki á óvart en það voru mjög skiptar skoðanir um þennan kennara ;)

Other Links to this Post

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment

You can add images to your comment by clicking here.