Mamma og Myrkvi
Við Hrafnkell ákváðum að fara í smá ævintýri í gær. Við græjuðum okkur, löbbuðum út á götuhorn og tókum strætó í Fisketorvet. Þar byrjuðum við á því að versla okkur bíómiða á Madagaskar 2 (vi taler dansk) og svo fórum við í H&M og keyptum ofsalega flotta fingravettlinga (ég vildi að ég gæti keypti magnpakkningu á vettlingum á barnið því að hann týnir þeim svo hratt að það er ekki eðlilegt). Svo fórum við í bíóið. Mamman komst að því að það er nánast 2 manna verk að fara með barnið í bíó – það þarf að leiða hann (amk finnst henni það) og svo þarf að halda á poppinu, drykkjum ofl. EN þetta hafðist, við komumst inn í bíósalinn og horfðum á þessa stórskemmtilegu mynd.
Hvað varðar myndina þá var hún fyndin en mér finnst samt íslensku raddirnar betri (og reyndar ensku bestar). Hrafnkell gleymdi sér stundum og byrjaði að tala dönsku við mig
sem er bara eðlilegt miðað við aðstæður.
Eftir myndina þá gerðist mamman svo ill að hún dró barnið með sér í búð og keypti helstu nauðsynjar. Hún hafði hugsað sér að skoða líka buxur á útsölunum (mikill skortur í gangi) en það féll í mjög svo grýttan jarðveg svo að hún ákvað að geyma það bara þangað til að hún kemst í friði.
Núna, þegar maður hefur í raun ekkert sem maður ÞARF að gera, þá ákvað ég að byrja að græja öskudagsbúning handa Hrafnkeli. Þar sem að hann vill vera prinsessa og ég vil það ekki þá var ákveðin málamiðlun tekin og hann verður galdrakall. Galdrakarlakyrtillinn er ósköp svipaður kjól en hann er samt blár með gulu/gull skrauti og stjörnum og hann er kyrtill – fyrir galdrakalla. (sem segja víst ekki “hókus pókus ég breyti þér í frosk” heldur “pókuspókus þú ert kolkrabbi”). Ég hugsa að það þyrfti ekki merkilegan sálfræðing til að átta sig á því að ég er svona dugleg við að gera búninginn vegna þess að það þarf virkilega að fara að taka til hérna.
Annars kemur Doddi heim eftir rúmlega viku – JIBBÝ!
7 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By Valdís, January 25, 2009 @ 05:38
Það er enginn smávegis dugnaðurinn! Og strákurinn aldeilis með úthald að ráða við heila kvikmynd í bíó, mig minnir að frændi hans hafi þurft nokkrar atrennur áður en hann gat klárað sig frá heilli mynd.
By Elva, January 25, 2009 @ 06:59
Hehe, já, Monsters-ferðin endaði með því að þæga barnið hellti kóki í fangið á móður sinni (sem grunar enn þann dag í dag að hafi verið viljandi gert) og Ragna greyið missti af endanum. Ísöldin fór ekki betur í barnið en það var nauðsynlegt að fara heim í hléi. Meira að segja Vélmennin voru of hræðileg til að klára og þá var hann örugglega orðinn 5!
Annars mæli ég með að kenna barninu að halda í úlpuna ef það er ekki hægt að halda í hendi eða labba “í klofinu” á mömmu sinni, ss fyrir neðan popp og nammi-binginn þegar það er örtröð. Svo er hægt að nýta sér þá gríðarlegu ábyrgðarkennd sem krakkar á þessum aldri (og eldri) og fá barnið til að hjálpa til með því að passa mömmu og kannski nammið. Reyndar þarf að minna á af hverju frekar oft því maður man ekki alltaf allt þegar maður er 3ja, eða 4ra eða ef út í það er farið 9ju.
Svo er ágætt að vera bara mökk stressuð
By Edda Rós, January 25, 2009 @ 10:14
Hurru já ekki bara heila kvikmynd heldur finnst dönum óþarfi að hafa hlé – sem mér finnst bara fáránlegt þegar um er að ræða barnamynd (með tilheyrandi pissuveseni).
En Hrafnkell hefur reyndar ótrúlegt þol í að horfa á teiknimyndir (hvort sem það er gott eða ekki)
By Edda Rós, January 25, 2009 @ 10:15
haha og já Hrafnkell fékk það hlutverk að halda í úlpuna hjá mömmu sinni og ég hugsa að hann hafi gleymt sér á ca 30 sek fresti. Ég bauð honum að passa nammið en það var ekki hægt nema að fá að éta það líka og þar sem að hann er alveg einsog mamma sín þegar kemur að nammiáti þá hefði það þýtt ekkert nammi inn í salnum.
By ella, January 25, 2009 @ 16:13
Hvahh, heyrði ég prinsessufordóma??
By Edda Rós, January 26, 2009 @ 09:00
Pottþétt
Þær eru ekkert nema vesen og vandræði… Annars á ég í smá vandræðum með þessa prinsessuást sonarins, ég var aldrei svona – ég bara skil ekki hvað hann sér við þetta.
By ella, January 26, 2009 @ 10:27
Hann er að ölum líkindum laumuprins.