Fitubollubúð
Ég er illa haldin af buxnaskorti. Allar buxur sem ég átti voru annað hvort með major gat í klofinu (ekki mjög aðlaðandi) eða þá amk 1/2 nr of litlar (ekki heldur mjög aðlaðandi). Þar af leiðandi ákvað ég að fara á buxnaveiðar í dag, græjaði mig á hjólið mitt og skrapp í Fisketorvet.
Í Fisketorvet lá leið mín beinustu leið í H&M, einsog ávalt þegar ég að að veiða föt. Ég fór í venjulegu fatadeildina, fjárans bara til buxur á horrenglur (já eða amk konur sem eru ekki jafn læramiklar og ég), svo fór ég í stórkonudeildina, fjárans bara til buxur í stærð 52 eða stærra (svona nánast). Ég var orðin ansi pirruð, enda hef ég í þónokkurn tíma verið á þessu fatastærðarbili – það eru til buxur sem eru of litlar og það eru til buxur sem eru of stórar en ekki passlegar. Mín lausn á því vandamáli væri að taka mig á og grennast (hin áttin er ekki lausn í mínum huga) í staðinn fyrir að hugsa bara um það að taka mig á. En þar sem að ég þarf buxur sem passa núna þá er ekki nóg að ákveða að byrja í ströngum diet á morgun.
Hvað átti ég þá að gera? H&M hefur verið mín fatabúð síðan við fluttum hingað út, að fara inní margar aðrar fatabúðir hérna er súrrealískt þar sem að það eru flestar fatabúðirnar hérna bara með föt á konur í góðu formi eða horaðari.
Ég ákvað að brjót odd á oflæti mínu og hætti mér inní fitubollubúðina (ta ta ta dammm). Búðina sem auglýsir óhrædd bara föt í stærðum 42 eða stærra, búðina sem er í alvörunni með fitubollugínur (sem eru reyndar með venjulega hausa og þar af leiðandi frekar kjánalegar). Ég laumaðist inn í búðina, með þá ósk í hjarta að enginn myndi sjá mig – amk enginn sem þekkir mig. Inn í búðinni missti ég andlitið, þarna inni var í alvörunni hægt að finna smekkleg föt (þrátt fyrir að gínurnar væru allar í fötum sem voru kellingalega smekkleg), það var heill veggur með mismunandi sniðum af gallabuxum OG mín stærð var til! Ég gat virkilega valið hvernig buxur ég vildi, ég þurfti ekki bara að kaupa einu buxurnar í búðinni sem voru til í minni stærð, ég hafði val. Ég tók nokkrar buxur og fór að máta og ég bara trúði ekki því sem ég var að upplifa. Buxurnar voru bæði smekklegar og þær voru hannaðar til að ná YFIR spikið og slétta það í staðinn fyrir að ná rétt upp á mjaðmir og þrengja þar að til að beri sem mest á öllum aukakílóunum – einsog flestar “venjulegar” buxur.
Ég bara verð að segja það að það er bara nokkuð ánægjulegt að vera í nýju fitubollubuxunum mínum. En það er samt takmarkið að fara í átak… Bráðum amk…
6 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By Ragna, January 26, 2009 @ 09:09
úff, það er sama vandamál hér á bæ, allar gallabuxurnar mínar eru með bætur í klofinu (og uppáhalds buxurnar mínar eru að eyðast fyrir ofan bótina
) og ég er farin að ganga um í leggings innanundir buxunum til að það sjáist ekki í mín private parts. En ég er að byrja í átaki í dag (og þ.a.l. tími ég ekki að kaupa buxur fyrr en eftir mánaðarmót)
By ella, January 26, 2009 @ 10:30
Frábært! Burt með alla fordóma. For-dómur = dæmt fyrirfram að óathuguðu máli! Til hamingju með að eiga passlegar buxur. Það eru lífsgæði.
By Elva, January 26, 2009 @ 10:34
Já, stundum fara fordómarnir verst með mann. Ég á við svipaðan vanda að stríða núna. Mig vantar brjóstahaldara en Leyndarmál Viktóríu selur ekki stærri skálar en D (held ég frekar en C). Búðin sem selur brjóstahaldara fyrir “þrifalegar konur” selur skálar upp í örugglega Z en brjóstkassaummálið fer ekki niðurfyrir 36 og það eru bara örfáir brjóstahaldarar. En ég nota 34, þrátt fyrir aukakílóin. Og ég hef ekki ennþá fundið búð fyrir brjóstastórar en litlar konur. Ég sakna La Sensa!
By Edda Rós, January 26, 2009 @ 10:50
Ég hef reyndar aldrei fundið góðan brjóstahaldara í La Sensa, sérstaklega ekki í hormjónubúðunum hér (danskar konur hljóta að vera almennt grennri en íslenskar, það er amk auðveldara að finna föt á venjulegar konur heima). En það er ein búð í Fields sem selur ágætis brjóstahaldara í okkar stærð – en já ég er líka í 34, þrátt fyrir allt, og með stærri skálar en d og stærri en dd…
By Ragna, January 26, 2009 @ 13:26
ég versla mína í Debenhams og ég er alltaf á leiðinni í svona mælingu, því ég er nokkuð viss um að ég er ekki að nota rétta stærð…
By Valdís, January 27, 2009 @ 09:41
Mér finnst brjóstahaldaraúrval almennt séð vera ferlega takmarkað. Þegar ég skoða brjóstahaldara finnst mér einmitt vandamálið vera að búðirnar hérna bjóða upp á brjóstahaldara í 32F, sem ég trúi varla að gerist oft án skurðaðgerðar, en þegar komið er upp í mitt ummál (töluvert meira) þá er ekki boðið upp á minni skálar en D. Ekki það, að ég hef svo sem fyllt töluvert betur út í skálarnar undanfarið…