Ein heima
Ég sit núna ein heima, oftast finnst mér það bara notalegt en núna er ég miklu meira ein heima en venjulega. Munurinn er einfaldlega að ég verð ein heima þangað til að ég næ í Hrafnkel, svo verð ég tvö heima þangað til að hann fer í leikskólann – en Doddi er farinn.
Hann fór í morgun til Noregs, þar sem hann verður að vinna næstu 3 vikurnar eða svo. Ég þarf hvort eð er að nýta tímann í prófalærdóm og eitthvað en samt…
Ætli það sé ekki best að hugsa bara money-money (must be funny in a rich mans world) og reyna að hætta þessari væmni – en amk þá sakna ég hans núna, ja eða ég sakna amk vitneskjunnar um að hann komi bráðum heim.
En þar fyrir utan þá verð ég að dásama matvinnsluvélina okkar ennþá meira – ég elska hana og ég elska alla ávextina sem ég keypti… Ég er að verða einsog þurrkunargaurinn í Vinum – nema ég er the blendingchick!
5 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI
By Ragna, January 8, 2009 @ 07:11
oh Eddie var svo pirrandi að ég get ekki horft á leikarann í neinu öðru núna án þess að pirrast!
By Elva, January 8, 2009 @ 13:39
Mohoho. Sama hér nema að það bættist ofan á að hann minnti mig alltaf á Bjögga vin einhvern veginn…
By Edda Rós, January 8, 2009 @ 13:46
Bjöggi var nú samt miklu sætari (amk ef maður er 13 ára)…
En já frekar pirrandi karakter – en það dregur ekki úr því hvað þetta er yndislegt tæki. Verst að ég er að drekka 4-5 smoothie á dag… (mmm kannski ég ætti að gera einn fyrir svefninn)
By Valdís, January 9, 2009 @ 14:40
Sammála Eddu, Bjöggi var miklu sætari
“Isn’t this a bit out of the blue?”
“No, this is smack in the middle of the blue!”
Ábyrgist ekki að þetta sé orðrétt línan, en brilliant lína samt!
By Edda Rós, January 9, 2009 @ 14:42
tíhíhíhí