Þreytt á hávaða og látum

Ég er orðin þreytt á hávaða og látum hérna. Mikið rosalega er ég samt stolt af mínum syni, þetta gæti verið móðurástin sem gerir mig blinda, mér finnst hann vera lang þægastur og taka tiltali lang best.

Ég velti því þó fyrir mér hvort að ég sé svona rosalega ströng mamma því að það er svo margt sem að viðgengst hérna sem myndi aldrei leifast á mínu heimili. Við Doddi erum, sem betur fer, alveg sammála um þetta – svo að við verðum sennilega hræðilega vondu foreldrarnir þegar/ef við eignumst fleiri unga. Við verðum með einhvern ofur heraga LOL ;-)

Maður sér samt alveg hvernig svona hegðun smitast út frá sér, því að við sjáum takta hjá Hrafnkel sem sjást almennt séð ekki. Takta sem við teljum að hann sé að apa eftir frændsystkinum sínum. Þetta er samt alveg synd því að þegar þau (Hrafnkell og Þórný frænka hans) taka sig til og leika fallega þá eru þau að leika rosalega fallega. En þess á milli *argh*

Ég er að verða nokkuð sátt við lúkkið á síðunni, búin að prufa nokkrar útgáfur, breyta og bæta. Er reyndar með hugmynd um eitt sem ég vil bæta við, en ég geri það þá ekki fyrr en við komum heim til Danmerkur.

5 Comments

  • By Valdís, December 30, 2008 @ 08:10

    Hehe! Rosalega hljóta að vera mikil læti í þeim hinum, því að ég veit að það er alveg kraftur í honum Hrafnkeli frænda mínum! Ekki þar með sagt að hann sé óþægur, það er bara mikill kraftur. Mér hefur síður en svo fundist að þið séuð of hörð við hann, heldur miklu frekar vel samkvæm sjálfum ykkur, þegar eitthvað er bannað, þá er það bara bannað en ekki sagt nei fyrstu fimm mínúturnar en svo leyft.

    Já, og síðan er flott!

  • By Edda Rós, December 30, 2008 @ 08:58

    Úú ég get líka haft sæta kalla hjá mínum kommenturum!

  • By Elva, December 30, 2008 @ 09:23

    Það litla sem ég hef séð til ykkar hafið þið ekki verið miklar gribbur. Það er örugglega allt öðruvísi að reka heila hjörð heldur en einn sauð eins og við en þá hefði maður haldið að langtíma áætlun væri enn mikilvægari en stundarfriður.
    Flott síða annars :)

  • By Edda Rós, December 31, 2008 @ 01:25

    Haha, þú ert líka flottur kall ;-)

  • By Hrafnhildur, December 31, 2008 @ 03:56

    jamm þar sem krakkaskari kemur saman þar er oftar en ekki hávaði. Haddi var reyndar mjög sáttur við sitt kyn hér á Jóladag þar sem þeir voru mjög þægir en hávaði og læti í yngri kvennþjóðinni. En oftast nær kemur hávaði þó þau geti líka leikið sér hljóðalaust. Þetta með kalkúninn þá hef ég nú bara einu sinni smakkað hann og hann var nú alveg þolanlegur en hér á bæ eru sko kótelettur á gamlárs en ekki einhver djöfulsins fiðurfénaður takk fyrir.

Other Links to this Post

RSS feed for comments on this post. TrackBack URI

Leave a comment

You can add images to your comment by clicking here.